I´m alive

Vóhóhó! Það liggur við að maður geti farið að tala um blogg dauða, ég er búin að vera svo svakalega löt að skrifa! Best að reyna að bæta fyrir það, svo ég missi nú ekki mína tryggu lesendur.Wink

Allt er bara á góðu róli núna. Er búin að vera að dansa í Magadanshúsinu undanfarinn mánuð og er bara rosalega ánægð með það. Hef farið í tíma til Josy og Rosönu og hef lært margt nýtt. Alltaf gott að prófa sem flesta kennara, það er svo mikil inspiration sem því fylgir, öðruvísi áherslur osfr. Svo erum við Fifi líka að semja dans. Erum alveg geðveikt að vanda okkur sko hehehe. Loksins verður eitthvað úr þessu hjá okkur og erum við búnar að finna sjúklegasta lag í heimi til þess.W00t

Svo er maður bara að bíða eftir að meistari Maher fari að lenda. Ok, ok það eru alveg tvær vikur í það... en það er sko alltaf stuð á Maher-geðveikinni. Þá meyna ég geðveiki í jákvæðum skilning. Manni líður oft eins og maður sé komin í herbúðir í tímunum hanns. Hann er strangur en ákaflega jákvæður kennari og maður lærir alltaf ótrúlega mikið á stuttum tíma, er skipað að syngja með lögum osfr. Og svo er ekki verra að maður missir alltaf nokkur kíló í öllum hamaganginum.Tounge

Síðan er auðvitað komið að Vetrarhátíð, þar sem Shams el Amar, hópurinn hanns Mahers og Maher sjálfur mun sýna fyrir hönd Kramhússins á Nasa, 22. febrúar. Verður pottþétt mikið stuð, dúettar hópadansar ofl. Hver ætlar að vera með?!?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband