Ný heimasíða og Sofia Vester

Ha blogga! Hvað er það?........ok, ég held ég sé farin að skulda færslu......

Er bara búin að vera svo bissí að gera nýja heimasíðu. Eins og margir vita, þá hef ég einstaklega gaman að því að dunda mér við heimasíðugerð, þannig að ég ákvað að gera eina fyrir mig. Það var sona magnafsláttur á godaddy sko heheheheGlottandi. Á síðunni má líka sjá nýjar myndir. Gott að eiga svona ljósmyndasnilling eins og hana Hörpu Hrund fyrir vinkonu. Hér er slóðin www.soheir.com .

Svo er námskeiðið með Sofiu Vester byrjað. Vá talandi um snillinga!! Hún er hreint út sagt ótrúleg. Nú skil ég hvað allir hafa verið að tala um! Hún er ekki bara góður dansari heldur líka alveg ótrúlega góður kennari. Fer svoooo djúpt í hverja einustu hreyfingu og hvern einasta vöðva. Getur látið mann pæla í einföldustu hreyfingum og stellingum á alveg nýjann hátt. Það er alveg nokkuð ljóst að okkur mun fara mikið fram næstu vikur. Svo erum við að vinna með Om Koulthom lag og kóreugrafíu. Svona dans sem verður að vera 150%. Best að vera dugleg að æfa sig heima....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband